Vala Örvarsdóttir

Velkomin á síðuna mína

07.08.2007 00:30:08 / valaorvarsd

Ný síða í vinnslu...

Kæru vinir,

Er komin með nýja heimasíðu og slóðin er www.123.is/valasvala . Þar verða framvegis fréttir af mér og mínum og það sem er enn betra... fullt af myndum til að skoða:P

Kveðja Vala


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 22:18:09 / valaorvarsd

4. ágúst - FSA

Halló.

Fríið okkar mömmu fór ekki alveg eins og við ætluðum því ég virðist hafa náð mér í einhverja veirusýkingu og nú erum við komnar á spítalann á Akureyri. Ég var komin með 39,5 stiga hita og var frekar slöpp svo mamma hafði sambandi við læknana í R-vík sem vildu að við færum til Akureyrar.Við lögðum af stað klukkan fimm í morgun, Kristján frændi minn keyrði okkur því mamma var frekar syfjuð. Læknirinn sem var á vakt þegar við komum er sá sami og sendi mig suður þegar ég greindist. Hann tók strax  blóðprufu sem kom bara nokkuð vel út en í samráði við læknana mína í R-vík var ákveðið að ég yrði hér í nótt. Í fyrramálið verður tekin ný prufa sem vonandi kemur líka vel út svo ég fái að fara aftur heim. Ég er búin að sofa mikið í dag því ég alveg ótrúlega þreytt og mamma hefur líka náð sér í smá kríu af og til:$ Biðjum að heilsa öllum og takk fyrir að vera svona dugleg að fylgjast með mér.

              Kveðja frá FSA

              Vala


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 00:20:30 / valaorvarsd

2. ágúst -mamma skrifar

Jæja þá erum við mæðgur komnar heim á Langanesið, flugum til Egilsstaða í morgun og tókum jeppann okkar þar. Blóðprufurnar í gærkvöldi komu vel út þannig að við gistum í Lindargötunni síðustu nótt. Í gær kom það óhapp fyrir hjá Völu minni að slangan sem liggur í lyfjabrunninn hennar slitnaði í sundur og blóðið spíttist út á gólf. Mikill hamagangur varð á stofunni okkar, fjórar hjúkkur gengu í málið og tóku nálina úr brunninum. Þar sem hún var að fá vökva í æð þurfti að setja strax upp nýja nál ódeyft, en það er alltaf settur deyfiplástur áður en nálin er sett upp og það tók mikið á litlu skrudduna mína. Ofan á allt saman er Vala með ofnæmi fyrir nánast öllum plástrum svo það er mjög erfitt fyrir hana þegar þeir eru teknir af henni:cry: Við eigum að mæta aftur á spítalann á þriðjudaginn í sprautur og blóðprufur, og eftir síðustu átök með nálina hugsa ég að Vala mín verði  ekki svo samnvinnuþýð, kannski ekki skrítið...:(

Annars eru hjúkkurnar allar farnar að elska hana og gera allt fyrir okkur sem þær geta. Vala er farin að þekkja þær flest allar með nafni og er sko ekki feimin við að spjalla við þær!! Guðmundur læknirinn hennar sem er orðin fullorðinn maður og búin að vinna í mörg ár með krabbameinssjúkum börnum er í miklu uppáhaldi hjá henni enda ekki annað hægt því hann er alveg dásamlegur við krakkana og mörg þeirra kalla hann afa:)

Við stefnum á að hafa það rólegt um helgina, ég og börnin og vonandi verður veðrið sæmilegt svo við getum verið eitthvað úti. Freyja og Arnar voru búin að teikna mikið af fallegum myndum handa Völu sinni þegar hún kom heim og á einni myndinni frá Freyju stóð "elsku Vala, ástin ríkir af eilífu". Fallegt ekki satt??? En Arnar minn er ekki eins mjúkur og teiknaði meira af eðlum, ormum, leðurblökum og hákörlum.....sem er bara fínt líka, allavega var systir hans mjög ánægð:D

Segi þetta gott í bili og vonandi eigið þið góða helgi.

                              Kveðja úr Bakkaveginum

   Gréta Bergrún, til hamingju með daginn!!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 22:03:50 / valaorvarsd

30.júlí

Í gærkvöldi var nálin sett í brunninn og tekin blóðprufa. Ennþá er ég mjög hrædd við nálina en venst henni vonandi bráðlega:( Blóðprufan kom mjög vel út, ég er há í hvítum blóðkornum, baráttufrumum, flögum og blóði þannig að læknarnir eru mjög ánægðir með mig.Snemma í fyrramálið fer ég í svæfingu og þá verður tekið sýni úr mænuvökvanum. Hjúkkurnar koma og bruna með mig í rúminu mínu sem er ótrúlega flott með hjólum, yfir á skurðstofuna sem er í gamla spítalanum þannig að fyrst þurfum við að fara mjög langann gang sem liggur undir bílastæðunum og fæðingardeildinni þar sem Freyja og Arnar fæddust og svo tvisvar í lyftu. Stundum er ég svolítið rugluð þegar ég vakna eftir svæfinguna en er yfirleitt fljót að jafna mig.

Halldóra ein af læknunum mínum sagði mömmu í morgun að sennilega mættum við fara heim í frí um helgina og þá koma Arnar og Freyja með okkur í Lindargötuna þegar við förum aftur suður og vera hjá okkur þangað til skólinn byrjar. Kannski fer mamma með okkur öll í bíó að sjá Simpsons en okkur systkynunum finnst hann frekar skemmtilegur:D

Solla frænka mín var hjá mér áðan svo mamma gæti aðeins skroppið heim í Lindargötuna en hún er mjög dugleg að koma til mín þegar hún er búin að vinna á daginn. Oft setur hún á mig "kroppakrem" og naglarlakkar mig en ég hef mikinn áhuga á snyrtivörum;););)Jæja nú eru hjúkkurnar mínar búnar að bjóða mér góða nótt þannig að ég ætla að fara að sofa.

Bless, bless knús á línuna. Kv, Vala


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 23:45:36 / valaorvarsd

29. júlí komin aftur á spítalann

Við mamma komum aftur á spítalann í kvöld og ég var bara ánægð að koma aftur enda búin að bræða hjúkkurnar sem tóku mér fagnandi:lol: Í fyrramálið fer ég í blóðprufu sem vonandi kemur vel út og svo kl. tvö fæ ég krabbameinslyf sem rennur í brunninn á einum sólarhring. Á meðan má ég alls ekki fara út úr herberginu svo við mamma ætlum bara vera með fullt af myndum til að horfa á. Við skrifum meira á morgun, erum orðnar þreyttar eftir ferðalagið og ætlum að leggja okkur.

            Góða nótt, elska ykkur öll

                   Kveðja Vala


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 23:18:15 / valaorvarsd

24. júlí -mamma skrifar

Jæja þá er kominn timi til að skrifa nokkrar línur því margir eru að fylgjast með henni Völu minni í gegnum netið og þar koma fréttirnar frá fyrstu hendi. Eins og þið flest vitið fengum við tíu daga frí og drifum okkur heim á Langanesið á Káta daga sem haldnir voru í sól og blíðu. Á laugardeginum var útimarkaður, þar var mjög margt fólk og virkilega góð stemning. Ég langar að þakka Önnu Maríu og hennar fólki fyrir frábæran stuðning, en þau voru með tombólu til styrktar Völu minni þar sem meðal annars var boðinn upp bolti sem seldist á tíu þúsund krónur!!!!!!! Það var strákur frá Vopnafirði sem hvorki hefur séð okkur né heyrt sem keypti boltann, áritaði hann og færði svo Völu. Virkilega fallega gert af þér Ármann, takk fyrir þetta er ómetanlegt:lol: Eins verð ég að þakka formanni UMFL fyrir góðan stuðning , en hann ákvað að gefa Völu nýjan Henson-galla að gjöf frá félaginu, þúsund þakkir!!!!!!!

En þá eru það bestu fréttirnar, en Vala fór á heilsugæsluna í morgun í blóðprufu sem kom svona aldeilis vel út. Stelpan hefur ekkert lækkað í blóði og helst ennþá frekar há í hvítu blóðkornunum:lol: Það var búið að vara okkur við því að hún þyrfti sennilega að koma suður í blóðgjöf í vikunni en það sleppur sem sagt til, sem betur fer.... 

Vala mín eyddi mestum hluta dagsins hjá "Siggu í bláa" meðan við foreldrarnir voru að setja upp eldhúsinnréttingu, planta trjám og eitt og annað. Það var heldur ánægð manneskja sem við sóttum til "Siggu og Abba" um kvöldmat og hún tilkynnti okkur að hún ætlaði aftur til þeirra strax á morgun. Það er spurning hvort Sigga gæti ekki hugsað sér að gera eitthvað annað í sumafríinu sínu en að passa börn............

         Segi þetta gott í bili, góða nótt

                       Kveðja Didda 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 23:33:31 / valaorvarsd

19. júlí

Ég mætti á spítalann kl. eitt í dag í lyfja og blóðgjöf. Hjúkkurnar voru mjög glaðar að hitta mig og knúsuðu mig og kysstu:lol: Eitthvað var blóðið lengi að koma frá blóðbankanum þannig að blóðgjöfin var ekki búin fyrr en um sex. Ég var orðin mjög lág í blóði, lægri en ég var þegar ég greindist fyrst en þá var ég 82 en í gær var ég komin niður í 73. Læknirinn minn sagði mömmu í dag að mjög sennilega þurfi ég meira blóð í næstu viku en þá skjótumst við mamma bara suður og komum svo heim daginn eftir. Ennþá er ég frekar há í hvítum og við vonumst til að það haldist þannig áfram.

Það er ekki gott að heyra að Bjarney Hulda sé komin með hlaupabóluna, er hún að ganga heima??? Ef það er eitthvað sem ég má alls ekki smitast af er það hlaupabólan en það getur verið mjög hættulegt fyrir mig:( Annars höldum við okkur kannski mest í sveitinni hjá ömmu, því ömmuból er svo mjúkt og heitt og ég elska litla koddann hennar ömmu!!!!!

Guðbjörg Gígja ætlar að gista hjá okkur í nótt en hún er í heimsókn hjá afa sínum og ömmu í Kópavogi. Áðan skruppum við í tívolíið og það var æðislega gaman, ég fór í litla bílalest en stelpurnar fóru í eitthvað sem snérist rosalega hratt og mér leist ekkert á það...

Ég átti alltaf eftir að þakka þér Katrín Sól, fyrir pakkann sem þú sendir mér um daginn. Ég er einmitt mjög hrifin af Línu Langsokk og mér fannst rosa gaman að fá pakka frá þér. Takk fyrir æðislega ég knúsa þig seinna:D

Segi þetta gott í bili, ætla að fara að sofa því ég á að mæta á lansann kl. 9 í fyrramálið.

                 Knús til ykkar allra, og takk fyrir góðar kveðjur.

                           Kveðja frá Lindargötunni  


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 21:06:11 / valaorvarsd

18. júlí-mamma skrifar

Jæja þá er komið að mér að skrifa aðeins, Vala mín er eitthvað þreytt í höndunum....:lol: Það stefnir allt í það að við mæðgur komumst heim á föstudaginn í fjörið sem þar verður um helgina. Svala er búin að bóka okkur í flug til Egilsstaða og Örvar sækjir okkur á flugvöllinn því hann er líka að fara í frí.

Litla skruddan mín er búin að fara í blóðprufu bæði í gær og dag sem hafa komið nokkuð vel út, því hún hefur ekkert lækkað í hvítum blóðkornum en það gerist gjarnan í þessari lyfjameðferð sem hún er í núna. Reyndar er hún orðin alltof lág í blóði, þannig að á morgun þarf hún að fá blóðgjöf, en það tekur fjóra tíma. Við erum svo vel stödd að eiga inni í blóðbankanum, því Örvar er búin að gefa blóð yfir 50 sinnum en hann er O- sem gengur í alla blóðflokkana. Núna skilur maður ennþá betur hvað það er mikilvægt að gefa blóð þegar maður er komin í þessa stöðu sem við erum núna því Vala okkar hefur þurft að fá blóð og blóðflögur nokkrum sinnum síðan hún greindist. Það væri nú ekki amalegt fyrir blóðbankann að fá þetta dásamlega norðlenska blóð.... þannig að næst þegar þið eigið leið suður ,hafið það í huga!!!

Nú er bara að vona að Vala mín lækki ekki meira í blóði á meðan við erum fyrir norðan, en hún á ekki að mæta aftur á lansann fyrr en 30. júlí en þá þarf hún að leggjast inn í nokkra daga og má ekki fara út úr herberginu á meðan hún fær það óþokkalyf...

  Sjáumst um helgina

  Kveðja Didda

  p.s Er það ekki rétt munað hjá mér að Ásta Eir eigi afmæli í dag?? Til hamingju!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 15:20:50 / valaorvarsd

16. júlí

Já Heiðrún, það hefur greinilega verið mikið fjör í Ásbyrgi um helgina og ekki erum við hissa á því að Arnar okkar hafi komið sér í sjálfheldu því það hefur sko gerst áður!!!! En mamma var nú samt ekki neitt stressuð yfir því að vera ekki hjá honum því hann var í góðum höndum Sigga Ragga og búin að fara með honum einu sinni áður:lol:

Við mæðgur vorum rétt í þessu að koma með fluginu frá Akureyri, búnar að vera í miklu fjöri þar. Á laugardaginn fóru Rakel, Þóra, Freyja og Emilía í sund í Hrafnagili og á meðan tókum við mamma og Harpa sveitarúnt inn í Fellshlíð til Elínar frænku hennar Þóru. Þar var nú aldeilis tekið vel á móti okkur og ég sá margar kýr, önd, hunda og kisu sem heitir Tómas. Á meðan kellurnar settust niður með kaffibolla fórum við Tómas að horfa á dvd og hann var svoooo góður við mig og var alveg sama þó ég klappaði honum öfugt...

Í gær var svo haldið upp á afmælið hennar Þóru í Kjarnaskógi í dásamlegu veðri. Þar er fullt af skemmtilegum leiktækjum og við Rakel fórum á kanínuveiðar en fundum reyndar enga kanínu;) Harpa grillaði pylsur við mikinn fögnuð og nóg var af snakki og gosi!!!

 Emilía Ýr frænka mín er að flytja til Svíþjóðar í næsta mánuði og ætlar að vera þar í tvö ár. Hún er búin að lofa því að vera dugleg að skrifa okkur bréf en við eigum örugglega eftir að sakna hennar mjög mikið:( Hún verður á Egilsstöðum hjá pabba sínum um jólin þannig að við hittum hana allavega þá ef ekki fyrr. Kannski skreppum við bara til hennar í heimsókn og kíkjum þá á Línu Langsokk og Emil í Kattholti í leiðinni........

Ég er búin að vera hress en mjög óstöðug á fótunum. Það þarf helst alltaf einhver að fylgja mér eftir því ég dett mjög oft. Harpa fékk lánaða kerru handa mér og við drifum okkur í göngutúr í gær þegar afmælið var búið. Á morgun fer ég í blóðprufu. Vonandi kemur hún vel út svo við mæðgur komumst heim til Þórshafnar fyrir helgi. Biðjum að heilsa öllum.

    Kv. Vala, mamma og Freyja


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 01:31:57 / valaorvarsd

13. júlí

Hæ hæ allir, það var nú aldeilis gott að komast aðeins heim um síðustu helgi en heilsan hefði samt mátt vera betri. Ógleðivörnin sem ég fékk hjá henni Sigrúnu hjúkkunni minni, gerði algjört kraftaverk og er nú ógleðin á bak og burt:) Síðan á þriðjudag er ég búin að mæta alla daga á spítalann til að fá lyf, en á morgun fæ ég síðustu sprautuna í bili og þá verður nálin tekin úr brunninum. Ég er alltaf svolítið hrædd þegar nálin er sett í og tekin úr en það venst örugglega eins og allt annað:(

Freyja mín átti afmæli í gær og hún og Hulda besta vinkona hennar fóru í bíó og sáu Harry Potter. Við erum líka búnar að fara í tívolí og í húsdýragarðinn. Síðasta blóðprufan hjá mér kom mjög vel út þannig að mamma er að leyfa mér að gera sem mest áður en ég lækka aftur í hvítu blóðkornunum, en það gerist víst með þessum lyfjum sem ég er að fá núna:( Við ætlum að fljúga til Akureyrar á morgun þegar ég er laus af spítalanum og vera hjá Hörpu um helgina. Mömmu fannst ferðalagið heim til Þórshafnar of langt fyrir mig síðast þannig að við ætlum að sleppa því í þetta sinn. Vonandi verð ég nógu hress í næstu pásu sem ég fæ en það verður frá 20.-30. júlí Sigrún sagði að við yrðum bara að vona það besta en hún gæti engu lofað...

Segjum þetta gott í bili.

                 Kossar og knús til ykkar allra.

                       Kveðja Vala


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 00:34:17 / valaorvarsd

8. júlí

Jæja nú er ég heima í hvíta húsinu mínu og það er alveg æðislega gaman.:lol: Við mamma flugum til Akureyrar á fimmtudaginn og gistum eina nótt hjá Hörpu frænku og flugum svo alla leið heim daginn eftir. Pabbi, Freyja, Arnar og amma sóttu okkur á flugvöllinn og þar urðu nú aldeilis fagnaðarfundir.:D

Sigrún hjúkkan mín hringdi í mömmu á föstudaginn og sagði henni að mergsýnið hefði komið vel út og ég skildi njóta þess að hitta alla sem ég vildi því ég væri frekar há í hvítum blóðkornum þessa stundina. Við fjölskyldan drifum okkur á leikskólann seinnipartinn og hittum alla krakkana og líka Siggu mína í "bláa húsinu" en Edda var í fríi og Lilja farin heim. Krakkarnir voru mjög ánægðir að sjá mig og ég þau. Við Sigga fórum inn til að vekja Bjarneyju Huldu sem svaf ein inni á dýnu, og þegar hún loksins vaknaði held ég að hún hafi bara haldið að hana hafi verið að dreyma....

Freyja mín hélt uppá 10 ára afmælið sitt í dag en hún á afmæli 12 júlí. Ég var í sveitinni hjá ömmu á meðan því ég er búin að vera frekar slöpp í dag og í gær.:cry: Í gær var ég komin með 37,7 stiga hita en ef ég fer í 38 verð ég strax að fara inn á spítala þannig að mamma og pabbi voru frekar stressuð yfir þessu. Hitinn hækkaði sem betur fer ekki en í dag tók ekki betra við því annaðhvort eru lyfin að fara eitthvað illa í mig eða þá að ég hef nælt mér í gubbupest því ég er búin að gubba tvisvar í dag:( Ég gaf mér samt tíma til að kíkja til Eddu minnar áðan því ég get nú ekki farið suður aftur nema hitta hana aðeins. Edda var voða glöð að sjá mig og sagði að ég hefði stækkað svo mikið á spítalanum(nema hvað!!  búin að innbyrða alla þessa stera... ;) Það var líka rosa gaman að hitta Jón Kristófer frænda minn aftur og ég færði honum liti sem maður má lita með í baðinu, en hann dreif sig bara með þá inn í stofu og litaði á einn vegginn þar...algjör snillingur!!! Mamma fór og hitti Hrafngerði í dag og hún lét hana hafa  fallegt hálsmen, kross sem hún hafði gert handa mér og ég er strax komin með um hálsinn. Æðislega fallegt af henni, þessi kross á örugglega eftir að hjálpa mér í gegnum þessi veikindi, þúsund þakkir!!!

Jæja, bið að heilsa í bili og góða nótt.

           Kveðja Vala

               Góða nótt kv. Vala


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 18:33:00 / valaorvarsd

4. júlí

Hæ hæ, ætla bara að láta ykkur vita að niðurstöðurnar úr mergsýninu koma ekki fyrr en á morgun, þannig að við þurfum að bíða aðeins lengur.Ólafur læknirinn minn er samt alveg viss um að hann sé orðinn alveg hreinn þannig að við erum bara bjartsýnar:lol:

Í kvöld ætla mömmur okkar krakkana í SKB að hittast. Mamma mín er að fara í fyrsta skipti og tekur með sér aðra mömmu frá Hornafirði sem hún er nýbúin að kynnast.Hún á 8 ára strák sem greindist með krabbamein mánuði á undan mér og er alveg ótrúlega duglegur eins og ég:D Sigrún hjúkkan mín hitti okkur mömmu í morgun og sagði að við mættum vera heima þangað til á þriðjudag, þannig að við fáum einn dag í viðbót fyrir norðan sem er æðislegt. Mamma var ekki sein á sér að hringja í Svölu og biðja hana að breyta flugmiðanum okkar!!!

Afi Indriði kom áðan og hitti mig og var mjög glaður að sjá hvað ég var orðin hress, því ég var mjög veik síðast þegar hann sá mig. Lyfið sem ég fékk núna síðast virðist ekki valda mér neinum ónotum svo ég verð vonandi bara hress í fríinu mínu:) 

            Knús til ykkar allra frá mér og mömmu.


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 19:55:47 / valaorvarsd

3. júlí

Jæja núna erum við mamma á spítalanum, komum hingað á sunnudagskvöldið. Ég var ekki ánægð með að koma aftur hingað því ég var orðin svo hress að ég hélt að ég þyrfti ekki meira á spítalann.:( En ég var samt fljót að sætta mig við að leggjast aftur inn, því hér vinnur svo æðislega gott fólk sem var farið að sakna min.

Klukkan tvö í gær fékk ég lyf í brunninn sem rann inn til klukkan tvö í dag eða sólarhring. Þetta lyf er gult á litinn og er algjört eitur eins og reyndar flest þessi lyf sem ég fæ og í dag og næstu daga pissa ég skærgulu pissi, ótrúlega flott!!! Í morgun fór ég svo í svæfingu og fékk mamma þær fréttir áðan að mænuvökvinn hefði verið alveg tær, sem er mjög gott en ekki var komin svörun út úr mergsýninu. Vonandi er allt í lagi merginn, við látum ykkur vita á morgunn því við vitum að þið eruð öll að fylgjast með:D

Við mamma vorum að skoða heimasíðu Bakkafjarðar áðan og sáum þessar fínu myndir að kofabyggingunni hjá Björgvini "afa" og krökkunum. Þetta er greinilega mjög flott hjá þeim og mér sýnist Arnar minn og allir hinir krakkarnir vera góðir smiðir:lol: Við fengum þær góðu fréttir í gær að við fengjum helgarfrí og mættum fljúga heim til Þórshafnar á föstudaginn en þyrftum að vera mættar aftur á spítalann eftir hádegi á mánudag Jibbíííí........ Það verður æðislega gott að koma aðeins heim aftur, þó það sé stuttur tími en við verðum sennilega í sveitinni hjá ömmu og afa því pabbi er búin að rífa allt út úr eldhúsinu í "hvíta húsinu okkar"

Ég hlakka mikið til að koma heim og mamma segir að það geri mér gott að anda aftur að mér norðlenska loftinu !!!!!!!! 

p.s Kristbjörg, til hamingju með daginn :lol: 

            Kveðja frá Völu og mömmu                                                                                                    


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 21:39:01 / valaorvarsd

30. júní - mamma skrifar

Ég má til með að segja ykkur frá tveimur frábærum konum sem við hittum fyrir nokkrum dögum síðan. Þær eiga báðar búðir í Glæsibæ önnur búðin heitir "STÚLKUR OG STÆLGÆJAR" og hin "FUNKY FISH". Ég, Arnar og Freyja fórum í "FUNKY FISH" og vorum að skoða allt frábæra dótið sem þar fæst og Arnar minn sagði konunni þar að litla systir sín væri með hvítblæði. Nokkrum dögum síðar fer ég með Hörpu systur þangað en þá var konan í hinni búðinni stödd þar og réttu  þær mér fullann poka af allskonar dóti og fötum handa litlu skruddunni minni. Finnst ykkur þetta ekki fallega gert af konum sem þekkja okkur ekkert ??? Ég skora á ykkur öll að fara að skoða þessar búðir því þær eru með frábærar vörur...

Mamma er búin að vera hjá okkur síðan á mánudag, en fór norður í dag og tók Freyju og Arnar með sér því Vala mín þarf að leggjast inn á spítalann annað kvöld. Á mánudagsmorguninn fer hún í svæfingu, og þá er tekinn úr henni mergur og sýni úr mænuvökvanum. Hún mun líka byrja á nýjum lyfjum sem hún þarf að taka næstu tvo mánuði og svo fær hún lyf í brunninn daglega í 4-5 daga. Ég vona bara að hún verði ekki mjög slöpp eftir það en óneytanlega tekur þetta mikið á svona lítinn kropp:( Vala mín er svo ótrúlega dugleg í þessu öllu saman og hefur styrkst mjög mikið síðustu daga. Þetta er nú samt svolítið eins og vera komin með ársgamalt barn aftur því hún er svo óstöðug á fótunum og ef hún sest niður á hækjur sér kemst hún ekki upp aftur nema fá hjálp. Ef ég gæti nú bara skipt við hana...........

Eyþór og Svala, takk fyrir komuna í dag það var frábært að hitta ykkur og takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa á síðuna:lol: Vala mín er samt búin að hafa talsverðar áhyggjur af því að Bjarney Hulda hafi hana ekki hjá sér þegar hún leggur sig á leikskólanum á daginn!!!

Takk fyrir kveðjurnar frá ykkur öllum, það er svo æðislega gaman að lesa þær því tíminn er kannski svolítið lengi að líða hjá okkur...

                        Góða helgi kv. Sóley

 p.s Hrafngerður, ertu ekki alveg á fullu fyrir káta daga ????????

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 23:40:18 / valaorvarsd

27. júní

Það var nú aldeilis gaman hjá mér í morgun þegar ég uppgvötaði að amma Sella var mætt á staðinn.:lol: Ég ætlaði nú á flugvöllinn í gær með Sollu að sækja hana en gafst upp á að bíða og sofnaði. Amma kom með fullt af myndum frá Hörpu fyrir mig að horfa á svo það er bara brjáluð bíóstemning framundan með öllu tilheyrandi. Reyndar verður ekki popp og kók á náttborðinu hjá mér heldur mjólkurglas og lifrarpylsa....

Í dag var Arnari mínum boðið í heimsókn á leikskólann þar sem Solla vinnur. Við mamma og amma skutluðum honum. Mig langaði svo mikið að fara með honum en mamma sagði að það væri ekki hægt því ég er svo lág í baráttufrumum núna.:cry: Arnar fór með vatnsbyssu með sér því það var vatnsbyssustríð fyrir utan leikskólann í dag og á morgun er búið að bjóða honum að koma með þeim í keilu en Arnar elskar að fara í keilu!!!!!

Í dag kláraði ég síðasta steraskammtinn og er strax orðin miklu betri í skapinu,:D Í fyrramálið er svo enn ein ferðin á spítalann í blóðprufu og sprautu. Ég ætla að koma við á leikstofunni hjá þeim Áslaugu og Gróu og mála eina mynd til að senda "Hamingjustjörnunum" á leikskólanum mínum en þau hljóta að vera farin að sakna mín því ég er búin að vera svo lengi í burtu;)

Amma og krakkarnir fara heim á föstudaginn eða laugardaginn svo það verður svolítið tómlegt hjá okkur mömmu. Ætli við komum okkur ekki bara notalega fyrir með lifrarpylsu og horfum kannski á Pétur og köttinn Brand........

                  Góða nótt og sofið rótt.

                     Kv. Vala


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Textabox
"glitter"
Textabox
Í veikindum elsku Völu okkar höfum við ákveðið að opna heimsíðu fyrir hana svo að vinir og ættingjar sem margir eru svo langt í burtu frá okkur geti betur fylgst með henni í gengnum þessi veikindi. Það frábært að sjá hvað margir hugsa til okkar, bestu kveðjur Vala og fjölskylda.
Klukkan
Textabox
"Glitter"
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti